Velkomin(n) á Wikipedíu
Alfræðiritið sem allir geta unnið að í sameininguÁ hinni íslensku Wikipedíu eru nú 55.015 greinar.
Grein mánaðarins
Guangzhou er höfuðborg og stærsta borg Guangdong-héraðs í suðurhluta Alþýðulýðveldisins Kína.
Borgin er við ósa Perlufljóts við Suður-Kínahaf. Hún er um 120 kílómetrum norðvestur af Hong Kong og 145 kílómetrum norður af Makaó. Samkvæmt kínverska manntalinu árið 2020 var íbúafjöldi borgkjarna Guangzhou um 16,1 milljón en íbúafjöldi undir lögsögu borgarinnar var 18,7 milljónir. Það er 47% fjölgun frá fyrra manntali árið 2010. Borgin og nærliggjandi svæði er eitt þéttbýlasta í heiminum með um 66 milljónir íbúa.
Vegna stöðu sinnar á mótum fljóta og sjávar hefur Guangzhou lengi verið ein helsta verslunar- og viðskiptamiðstöð Kína. Hún hefur verið sem dyr fyrir erlend áhrif í Kína allt frá 3. öld e.Kr. Hún var fyrsta kínverska höfnin sem evrópsk kaupmenn heimsóttu reglulega, og kölluðu þá Canton. Enska nafnið „Canton“ er dregið úr portúgölsku „Cantão“ sem var einhverskonar framburður á Guangdong.
Kanton er það borgarnafn sem íslenskir prentmiðlar hafa langmest notað, allt til dagsins í dag. Á síðari hluta 20. aldar birtist Kwangchow þó æ meir í íslenskum miðlum í stað Kanton, en í dag er Guangzhou meira notað.
Borgin er mikilvæg menningar-, iðnaðar-, viðskipta -, og samskiptamiðstöð. Meginhöfnin er stór sem og alþjóðaflugvöllur borgarinnar. Þá er borgin á lestarleið Beijing og Hong Kong. Efnahagur borgarinnar er gríðaröflugur og hefur verið í miklum vexti í áratugi. Síðustu áratugir hafa einkennst af umfangsmiklum byggingarframkvæmdum og innviðauppbyggingu. Borgin er leiðandi fjármálamiðstöð á Asíu.
Í fréttum
- 1. október: Yfir 50 hafa látist í mótmælum í Íran eftir að Mahsa Amini lést í haldi írönsku siðgæðislögreglunnar eftir barsmíðar fyrir að hafa klætt sig ranglega með höfuðslæðu.
- 30. september: Vladímír Pútín Rússlandsforseti lýsir yfir innlimun úkraínsku héraðanna Donetsk, Lúhansk, Zaporízjzja og Kherson í Rússland.
- 26. september: Bandalag hægriflokka undir forystu Bræðra Ítalíu vinnur þingkosningar á Ítalíu. Áætlað er að Giorgia Meloni (sjá mynd) verði fyrsti kvenforsætisráðherra landsins.
- 11. september: Bandalag Svíþjóðardemókrata, Hægriflokksins, Frjálslyndra og Kristilegra demókrata vinnur þingmeirihluta í kosningum í Svíþjóð.
- 10. september: Úkraínumenn endurheimta af rússneska hernámsliðinu um 3.000 ferkílómetra svæði austur af borginni Kharkív. Í kjölfarið gerðu Rússar árásir á innviði í samnefndu héraði.
- 8. september: Elísabet 2. Bretadrottning deyr eftir rúm sjötíu ár í embætti. Ríkisarfinn Karl tekur við konungdómi í Bretlandi undir nafninu Karl 3.
Yfirstandandi: Borgarastyrjöldin í Jemen • Innrás Rússa í Úkraínu/Stríð Rússlands og Úkraínu • Kórónaveirufaraldurinn • Sýrlenska borgarastyrjöldin
Atburðir 7. október
- 2001 - Stríðið í Afganistan: Bandaríkin réðust inn í Afganistan.
- 2003 - Arnold Schwarzenegger var kjörinn fylkisstjóri Kaliforníu.
- 2008 - Bankahrunið á Íslandi: Íslenska fjármálaeftirlitið tók yfir rekstur Landsbanka Íslands.
- 2008 - Bankahrunið á Íslandi: Rússland bauðst til að veita Íslandi lánafyrirgreiðslu að upphæð 4 milljarðar evra.
- 2008 - Bankahrunið á Íslandi: Davíð Oddson kom fram í Kastljósi og sagði: „ við ætlum ekki að borga erlendar skuldir óreiðumanna“.
- 2013- Stöð 3 hóf göngu sína á Íslandi.
Vissir þú...
- … að orðið kósakki þýðir „frjáls maður“ á tyrkneskum málum?
- … að flestir grunnskólar í Kína gera kröfu um að nemendur gerist aðilar að Brautryðjendaæsku Kína (sjá mynd)?
- … að Bartólómeus 1., patríarki rétttrúnaðarkirkjunnar í Konstantínópel, er stundum kallaður „græni patríarkinn“ vegna áhuga hans á umhverfisvernd?
- … að á tímabilinu 2000 til 2009 voru sex blaðamenn hjá rússneska dagblaðinu Novaja Gazeta myrtir?
- … að búauðgisstefnan er almennt talin fyrsti vísindaskólinn í hagfræði?
Fjarskiptatækni • Iðnaður • Internetið • Landbúnaður • Lyfjafræði • Rafeindafræði • Rafmagn • Samgöngur • Stjórnun • Upplýsingatækni • Verkfræði • Vélfræði • Þjarkafræði
Afþreying • Bókmenntir • Byggingarlist • Dulspeki • Ferðamennska • Garðyrkja • Goðafræði • Heilsa • Íþróttir • Kvikmyndir • Kynlíf • Leikir • List • Matur og drykkir • Myndlist • Tónlist • Trúarbrögð
Atvinna • Borgarsamfélög • Félagasamtök • Fjölmiðlar • Fjölskylda • Fyrirtæki • Hernaður • Lögfræði • Mannréttindi • Umhverfið • Verslun
Náttúruvísindi og stærðfræði
Dýrafræði • Eðlisfræði • Efnafræði • Grasafræði • Jarðfræði • Landafræði • Líffræði • Náttúran • Stjörnufræði • Stærðfræði • Vistfræði • Vísindaleg flokkun • Vísindi
Félagsfræði • Fornfræði • Fornleifafræði • Hagfræði • Heimspeki • Mannfræði • Málfræði • Málvísindi • Menntun • Saga • Sálfræði • Tungumál • Tónfræði • Uppeldisfræði • Viðskiptafræði • Vitsmunavísindi
Ýmislegt
Listar • Gæðagreinar • Úrvalsgreinar • Efnisflokkatré • Flýtivísir • Handahófsvalin síða • Nýjustu greinar • Nýlegar breytingar • Eftirsóttar síður
Systurverkefni
| Wikiorðabók Orðabók og samheitaorðabók |
Wikibækur Frjálsar kennslu- og handbækur |
Wikivitnun Safn tilvitnana | |||
| Wikiheimild Frjálsar grunnheimildir |
Wikilífverur Safn tegunda lífvera |
Wikifréttir Frjálst fréttaefni | |||
| Commons Samnýtt margmiðlunarsafn |
Meta-Wiki Samvinna milli allra verkefna |
Wikiháskóli Frjálst kennsluefni og verkefni | |||
| Wikidata Samnýttur þekkingagrunnur |
Wikivoyage Ferðaleiðarvísar |
Mediawiki Þróun wikihugbúnaðarins |